Akstur, ökutæki og akstursvörur
Áður en hægt er að skrá akstur þarf að stofna ökutækin. Akstursvörur ráða verðinu, svo upphæð hverrar ferðar reiknast sjálfkrafa.
Til að hægt sé að skrá akstur þarf að minnsta kosti eitt ökutæki. Akstursvara er gjaldið, til dæmis kílómetragjald, og með henni reiknast upphæð ferðarinnar út frá magni. Hún er valkvæð: ef ökutæki hefur enga akstursvöru slær sá sem skráir inn upphæðina sjálfur.
Aðeins Stjórnandi og Skrifstofumaður sjá flipana Ökutæki og Akstursvörur undir Akstur. Hvernig ferðir eru skráðar sérðu í Skrá akstur.
Stofna ökutæki
Kafli: „Stofna ökutæki“- Farðu í AksturÖkutæki og smelltu á + efst til hægri.
- Skrifaðu Nafn, til dæmis tegund og bílnúmer. Starfsmenn velja bílinn eftir þessu nafni. Tvö ökutæki mega ekki heita það sama.
- Smelltu á Búa til ökutæki. Síða ökutækisins opnast.

Ef fyrirtækið á enga akstursvöru sést spjaldið Stofna akstursvöru um leið í glugganum og kveikt er á rofanum. Fylltu þá út Heiti akstursvöru, Einingarkóði og Einingarverð (án vsk.). Varan verður til og tengist bílnum. Slökktu á rofanum ef þið viljið frekar slá inn upphæð í hvert sinn.

Séu fleiri en ein akstursvara til birtist taflan Akstursvörur neðst í glugganum og hakað er við þær allar. Taktu hakið af þeim sem eiga ekki við bílinn. Sé aðeins ein vara til tengist hún nýja bílnum án þess að tafla birtist.
Stofna akstursvöru
Kafli: „Stofna akstursvöru“- Farðu í AksturAkstursvörur og smelltu á +.
- Skrifaðu Nafn. Það sést þegar akstur er skráður og í línunni á sölureikningnum, til
dæmis
KílómetragjaldeðaInnanbæjarakstur. - Veldu Einingarkóði: Kílómetri, Klukkustund, Stykki, Dagur, Ferð eða Krónur. Kílómetri hentar ef rukkað er eftir vegalengd, Stykki fyrir fast gjald á hverja ferð. Einingin Ferð birtist sem FRD í listunum, svo Stykki er skýrara.
- Settu inn Einingarverð (án vsk.). Það verður að vera hærra en 0.
- Í töflunni Ökutæki er hakað við öll ökutæki. Taktu hakið af þeim sem eiga ekki að fá vöruna og smelltu á Búa til akstursvöru.


Mismunandi verð eftir bílum
Kafli: „Mismunandi verð eftir bílum“Þegar ökutæki er valið í skráningu sjást aðeins akstursvörurnar sem tengdar eru því. Þannig má hafa eitt kílómetragjald fyrir minni bílana og annað fyrir stóra sendibílinn: tvær akstursvörur, hvor tengd sínum bílum.
Smelltu á ökutæki í listanum til að sjá hvaða akstursvörur eru tengdar því. Spjaldið Akstursvörur sést þar aðeins ef fyrirtækið á fleiri en eina akstursvöru. Tengingunum breytirðu í Breyta í þriggja punkta valmyndinni, hvort sem er á ökutækinu eða akstursvörunni. Taflan með hökunum birtist þar ef til eru fleiri en ein akstursvara (á ökutæki) eða fleiri en eitt ökutæki (á akstursvöru).

Breytirðu Einingarverð (án vsk.) á akstursvöru gildir nýja verðið um ferðir sem eru skráðar eftir það. Eldri ferðir halda sínu verði nema þeim sé breytt, sjá Skrá akstur.
Eyða akstursvöru
Kafli: „Eyða akstursvöru“Veldu Eyða í þriggja punkta valmynd akstursvörunnar og staðfestu. Varan hverfur þá af öllum ökutækjum. Ferðir sem voru skráðar á hana halda magni og upphæð, en heiti vörunnar hverfur úr listunum. Fari slík ferð á reikning fær línan aðeins heiti ökutækisins í Lýsing. Eigi varan bara ekki lengur við einn bíl er nóg að taka hakið af honum, sjá Mismunandi verð eftir bílum.