Akstur

Last updated on Jun 01, 2026

Hægt er að skrá skrá akstur meðfram tímaskráningu í Unni appinu. Við gerum það með því að skrá ökutæki og akstursvörur. Þú getur tengt ákveðin ökutæki við ákveðnar akstursvörur svo hægt sé að rukka sérverð fyrri stærri ökutæki.

Stofna nýtt ökutæki

Farið í Akstur -> Ökutæki. Þar getur þú stofnað nýtt ökutæki, með því að smella á + í hæra horninu.

Þar setur þú inn nafn t.d. bílnúmer eða bílategund eða bæði.

Stofna nýja akstursvöru

Farið í Akstur -> Aksturvörur og stofnið nýja aksturvöru með því að smella á + í horninu.

Þar getur þú búið til þína eigin aksturvöru og sett fast verð á hana. Hér eru dæmi um innabæjaraksturgjald sem er rukkað í stk og km gjald sem rukkað eftir km. Þarna getið þið sett ykkar eigin vörur t.d. ökutæki + kerra eða gjald fyrir staðsetningu sem þið vinnið reglulega á t.d. Selfoss gjald.

Þið getið þarna stýrt hvaða aksturvörur fara á hvaða ökutæki þannig hægt er að hafa sér verð á stærri ökutækjum!